top of page

Sóleyjarbakki

...fyrir hesta og menn

Sóleyjarbakki1.jpg

VELKOMIN

 

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í sveitina!

Á Sóleyjarbakka gefst fjöskyldum og vinum tækifæri til að eiga notarlegar stundir saman í einni veðursælustu sveit landsins, Hrunamannahreppi. Tilvalið fyrir hestafólk þar sem í boði er gisting fyrir allt að 12 manns ásamt topp aðstöðu fyrir hesta hvort heldur sem er inni í glæsilegu hestúsi eða úti í grænum haga. 

 

 

IMG_2979-HDR.jpg

UMHVERFIÐ

 

Sóleyjarbakki 

 

Jörðin er í dag sjálfstætt býli en var á árum áður hjáleiga frá Hrepphólum. Sóleyjarbakki er meðalstór jörð vel grösug og á veiðirétt í Stóru Laxá. Í áratugi hefur skórækt hefur verið stunduð á jörðinni ásamt hrossarækt. 

Hér er að finna dásamlegar reiðleiðir í allar áttir og margar af fallegegustu náttúruperlum á Suðurlandi. Örstutt er á Flúðir þar sem er úrval veitingastaða, matvöruverslun, Vínbúðin og Litla Melabúðin en þar er hægt að fá nýtt og  ferskt grænmeti alla daga ásamt alls kyns varningi beint frá býli. 

Á Flúðum er er einnig hin vinsæla laug "Gamla laugin" eða "Secret Lagoon" og svo margt margt fleira skemmtilegt og spennandi.

Einnig höfum við til leigu 10 nýjar og glæsilegar íbúðir á Flúðum. Hver um sig býður upp á gistipláss fyrir allt að fjóra. Nánari upplýsingar á nortia.is 

bottom of page